Leiðsöguhundahittingur

Leiðsöguhundum og notendum þeirra er boðið á leiðsöguhundahitting á miðvikduaginn 24. mars klukkan 17.00, uppi á sjöttu hæð í húsakynnum Sjónstöðvarinnar. Carína frá Kustmarken verður með okkur og fer yfir nokkur grundvallaratriði í meðferð leiðsöguhunda, þar á meðal:

  • Hvernig staðsetja skal hundinn í bíl

  • Mikilvægi skýrra samskipta

  • Hlutverk notenda og hunds

Félagar geta einnig spurt spurninga og fengið ráðleggingar um það sem þeim liggur á hjarta. Að lokum verður boðið upp á pizzu fyrir þá sem vilja njóta góðrar samveru.

Við hvetjum alla til að mæta, nýta sér visku Karínu og njóta félagskapar frá okkar frábæru félögum – bæði tví- og ferfættum.

Skynjumst á miðvikudaginn,
Keli og Gaur