Molar og kaffi

Molar og kaffi verða á þriðjudögum í allt sumar, svo endilega kíkið við og eigið notalega samverustund með okkur með ilmandi kaffi.

Samveran er á milli 10:00 og 11:30 í Hamrahlíð 17 á 2. hæð. Engin formleg dagskrá er í Molum og kaffi, tilgangur samverunnar er fyrst og fremst að hitta aðra í svipaðri stöðu, deila reynslu og spjalla.