Opið hús á fimmtudögum

Blindrafélagið er með Opið hús þriðjudaga og fimmtudaga í sal félagsins í Hamrahlíð 17 á annarri hæð. Allir félagar eru hjartanlega velkomnir í Opið hús og sjálfsagt er að taka með sér vin eða vandamenn. Opnu húsin hefjast kl. 13:00.

Þriðjudaginn 2. desember verður Anna Sigríður Helgadóttir umsjónarmaður. Gestir hennar verða, sökum mikillar eftirspurnar og ákveðinna óska frá félagsmönnum, þeir félagar Davíð og Stefán 

Fimmtudaginn 4. desember verður Rúna Garðarsdóttir umsjónarmaður. Gestur hennar verður Þórdís Helgadóttir, rithöfundur og ljóðskáld.
 
Opið hús er sent út í beinni útsendingu í Vefvarpinu fyrir þá sem eru á landsbyggðinni eða sjá sér ekki fært að mæta í húsið. Hægt er að hlusta á Opið hús í Vefvarpinu undir liðnum „Efni frá Blindrafélaginu“ og „Bein útsending úr sal félagsins“. Einnig er hægt að hlusta á eldri Opin hús undir liðnum „Efni frá Blindrafélaginu“, „Opið hús, viðburðir og ýmislegt annað efni“.