Opinn tími með tölvu og tækni ráðgjöfum

Opinn tími með tölvu og tækni ráðgjöfum, fimmtudaginn 11. desember.

Fimmtudaginn 11. desember næstkomandi kl. 14:45, verður opinn tími með tækniráðgjöfum Blindrafélagsins og Sjónstöðvarinnar. Við munum hittast í salnum í Hamrahlíð 17 á annarri hæð. Tímarnir eru opnir öllum og allir hjartanlega velkomnir.

Í þessum hitting ætlum við að segja aðeins frá GoBox tækinu sem er nýtt tæki sem notað er til að láta lesa fyrir sig textann í sjónvarpinu. Einnig ætlum við að segja aðeins frá nýjustu kerfis uppfærslunni fyrir Blindshell símann og af hverju það er mikilvægt að uppfæra. Svo verðum við einnig að sýna skanna sem getur lesið fyrir þig efni á prentsniði. Prentefni fer nú minnkandi en samt getur verið þægilegt að hafa tæki sem getur lesið upp prentað efni.

Boðið verður boðið upp á kaffi og spjall og aðstoð frá tækniráðgjöfum. Það er velkomið að taka með sér tölvur, síma og tæki sem ykkur vantar aðstoð með, en einnig er öllum hjartanlega velkomið að mæta og hitta aðra. Þetta er gott tækifæri að mæta og sækja sér jafningjastuðning og heyra frá öðrum hvernig þeim gengur að nota sín tæki og tól.

Hlökkum til að sjá ykkur.
Baldur Snær Sigurðsson, tækniráðgjafi Blindrafélagsins.
Helena María Agnarsdóttir, Tölvu- og tækni ráðgjafi Sjónstöðvarinnar.