Föstudaginn 17. apríl hittast félagsmenn í sal Blindrafélagsins til að fagna vorinu með góðum mat, skemmtilegri tónlist og félagsskap. Hinn eini og sanni Mugison sér um skemmtunina, boðið verður upp á fylltar kjúklingabringur, kryddaðar kartöflur, rótargrænmeti og dásamlega sósu – en eftirrétturinn er leyndarmál.
Allir fá happdrættismiða við innganginn, aukamiðar verða seldir á 500 krónur með reiðufé.
Skráning fer fram í síma 525-0000 eða með tölvupósti á afgreidsla@blind.is. Miðaverð er 5.500 krónur á mann og síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 15. apríl.
Tryggið ykkur sæti og takið þátt í gleðilegum vorfagnaði með félögum. Húsið opnar kl 18.00 og maturinn er klukkan 19.00.
Kveðja,
Skemmtinefndin.