Styrktarsjóðir

Blindrafélagið heldur utan um þrjá styrktarsjóði sem öllum er stýrt af sjálfstæðum stjórnum. Þessir sjóðir eru:

  • Sjóðurinn Blind börn á Íslandi.
  • Stuðningur til sjálfstæðis, styrktarsjóður Blindravinafélags Íslands og Blindrafélagsins.
  • Styrktarsjóður Richards P. Theodórs og Dóru Sigurjónsdóttur.

Í janúar árið 2024 rann styrktarsjóður Margrétar Jónsdóttur inn í styrktarsjóðinn Blind börn á Íslandi.

Með því að gerast bakhjarl Blindrafélagsins taka einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir þátt í að styðja starfsemi styrktarsjóða félagsins og þar með mikilvægt hagsmunastarf á sviði aðgengis og inngildingar.

Stuðningur bakhjarla gerir Blindrafélaginu kleift að þróa starfsemina áfram, mæta breyttum þörfum og tryggja að stuðningur nái til þeirra sem á þurfa að halda.

Framlög í styrktarsjóði Blindrafélagsins nýtast til margvíslegra verkefna, meðal annars menntunar, endurhæfingar, tækjakaupa, þátttöku í samfélaginu og annarra úrræða sem efla sjálfstætt líf og virkni. Styrkirnir geta skipt sköpum á lykiltímum í lífi einstaklinga og fjölskyldna þeirra.

Allir styrktarsjóðir félagsins eru reknir með gagnsæi og hver króna er nýtt af kostgæfni til að ná sem mestum árangri fyrir þá sem á þurfa að halda.

Ef þú hefur áhuga á að gerast bakhjarl eða vilt fá nánari upplýsingar um styrktarsjóðina og möguleika á stuðningi geturðu kynnt þér málið nánar hér.