Nýtt smáforrit frá Hljóðbókasafninu.

Nýtt smáforrit er nú komið út frá Hljóðbókasafninu sem gerir notendum snjallsíma og spjaldtölva kleyft að hlusta auðveldlega á bækur frá safninu í sínum snjalltækjum. Smáforritið er mjög einfalt í notkun og ætti að vera mjög aðgengilegt fyrir notendur.

Hér er tilkynningin frá Hljóðbókasafninu:

Kæru lánþegar, margir hafa beðið þess með óþreyju að nýja smáforritið færi í loftið, og nú er komið að því. Nýja smáforritið er hvort tveggja fyrir Android og iOS. Smáforritið finnur þú á Play Store fyrir Android og App Store fyrir iOS. Helstu nýjungar í smáforritinu eru þær að nú er hægt að hala niður bókum í smáforritið, hægt er að leita í og velja sér bókaflokka til að fylgjast sérstaklega með, leitin er fullkomnari og hægt er að breyta útliti á smáforritinu, t.d. litum í bakgrunni svo eitthvað sé nefnt. Vinsamlegast sýnið þolinmæði þótt smáforritið sé 1-2 sekúndum lengur í gang en þið eigið að venjast.Við vinnum í því. Þegar það er komið upp hefur það reynst mjög stöðugt. Tákn smáforritsins er nú blátt.

Góða skemmtun.
Hljóðbókasafn Íslands.

Hægt er að ná í smáforritið fyrir Android snjalltæki á Google Play Store, og fyrir iOS snjalltæki í App Store hjá Apple.