Stuðningur til sjálfstæðis auglýsir eftir styrktarumsóknum.

 

Stuðningur til sjálfstæðis - styrktarsjóður Blindravinafélags Íslands og Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi tekur á móti umsóknum fram til 1. apríl vegna styrkja fyrir fyrri hluta 2023.

Veittir eru styrkir í 4 styrkjaflokkum, A, B, C og D:

A) Náms- ferða- og ráðstefnustyrki til fagfólks sem starfa með blindum og sjónskertum einstaklingum, eða vinna að hagsmunamálum þeirra.

B) Náms-, ferða-, endurhæfingar- og ráðstefnustyrki til félagsmanna Blindrafélagsins.

C) Styrki til félagsmanna Blindrafélagsins til kaupa á hjálpartækjum og tölvubúnaði.

D) Styrki til verkefna sem eru hagsmunum blindra og sjónskertra til framdráttar. Skipulagsskrá, úthlutunarreglur,umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar má nálgast á heimasíðu félagsins.