Aðalfundur UngBlind.

UngBlind, ungmennadeild Blindrafélagsins, hélt aðalfund sinn miðvikudaginn 14. mars. Mæting var með mesta móti í ár og voru umræður líflegar. Auk venjulegra aðalfundarstarfa var kosið í stjórn deildarinnar.

Í nýrri stjórn UngBlind sitja:
Eyþór Kamban Þrastarson, formaður.
Helga Dögg Heimisdóttir.
Colin Dalrymple.
Varamenn í stjórn eru Iva Marín Adrichem og Margrét Helga Jónsdóttir.

Samþykkt var af fundinum að taka upp nýtt form á aðalfundi sem framvegis verður haldinn að hausti til um helgi sem hluti af árlegum viðburði að norrænum sið. Því verður næsti aðalfundur í september á þessu ári.