Aðalfundur Blindrafélagsins, haldinn 9. maí 2026
Aðalfundur Blindrafélagsins, haldinn 9. maí 2026 ítrekar fyrri ályktun frá aðalfundi 2025 og skorar á stjórnvöld að tryggja að Hljóðbókasafn Íslands fái framtíðarhúsnæði í Hamrahlíð 17, þar sem það hóf starfsemi sína eftir formlega stofnun árið 1982 og á eðlilegan samastað innan öflugs þjónustukjarna fyrir blint og sjónskert fólk.
Allt stefnir í að safnið þurfi að flytja úr núverandi húsnæði á næstu mánuðum þar sem húsnæðið hefur verið selt. Með aukinni stafrænni þróun hefur húsnæðisþörf þess minnkað verulega og því er ljóst að Hamrahlíð 17 hentar starfseminni mun betur en áður, hvað varðar stærð, aðgengi og samlegð við aðra þjónustu. Það er því rökrétt niðurstaða að safnið þekkist boð Blindrafélagsins um aðstöðu í Hamrahlíð 17.
Í Hamrahlíð 17 er þegar fyrir hendi fjölbreytt og samhæfð þjónusta sem blint og sjónskert fólk sækir sér: endurhæfing, ráðgjöf, tækniaðstoð og jafningjastuðningur. Blindrafélagið hefur um árabil unnið að því að koma sem mestu af þjónustu við blint og sjónskert fólk undir eitt þak.
Með endurkomu Hljóðbókasafnsins myndi enn frekar styrkjast sú heild sem húsið stendur fyrir. Einnig myndi starfsfólk safnsins fá betri vinnuaðstöðu í rými sem er sérútbúið með þarfir notenda að leiðarljósi.
Hljóðbókasafnið er lykilstofnun í aðgengi blindra og sjónskertra að bókmenntum, menningu og upplýsingum. Safnið er lifandi dæmi um hvernig hægt er að veita aðgengi að efni sem annars væri lokuð bók fyrir fjölda fólks. Með því að gera efni aðgengilegt hefur safnið átt stóran þátt í að auka sjálfstæði notenda, styrkja menntunarmöguleika þeirra og gera þeim kleift að taka virkan þátt í menningar- og samfélagslífi á eigin forsendum.
Aðalfundurinn telur að engin gild rök standi gegn því að safnið komi aftur heim í Hamrahlíð 17.
Fundurinn hvetur menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra til að bregðast tafarlaust við og taka skýra ákvörðun án frekari tafa, svo Blindrafélagið geti undirbúið móttöku safnsins og tryggt að þjónustan raskist sem minnst við flutningana.
Skoðanakannanir Gallup hafa sýnt að þjónusta Hljóðbókasafns Íslands er sú þjónusta sem verðmætust er að mati félagsmanna Blindrafélagsins. Það væri því synd að láta þetta einstaka tækifæri úr greipum ganga til að koma safninu aftur heim.