Bylting í samgöngum blindra og sjónskertra.

Ný tæknilausn í almenningssamgöngum felur í sér stórt framfaraskref fyrir blinda og sjónskerta á Íslandi. Nú hefur verið hafin uppsetning NaviLens-kóða á biðstöðvum Strætó sem gerir farþegum kleift að nálgast upplýsingar um leiðir og komutíma á sjálfstæðan hátt.

Verkefnið er samstarf Blindrafélagsins og Strætó og er liður í því að bæta aðgengi að almenningssamgöngum. Fyrstu kóðarnir hafa þegar verið settir upp á biðstöðvum á leiðum 13 og 14 og stefnt er að frekari innleiðingu á næstu misserum.

Með NaviLens-tækninni geta blindir og sjónskertir notendur skannað kóða með snjallsíma og fengið upplýsingar lesnar upp í rauntíma, svo sem hvaða leiðir stoppa á viðkomandi stað og hvenær næsti vagn kemur. Lausnin virkar úr meiri fjarlægð en hefðbundnir QR-kóðar og krefst ekki nákvæmrar staðsetningar myndavélar, sem gerir hana sérstaklega aðgengilega.

Þessi lausn eykur sjálfstæði farþega verulega og dregur úr þörf fyrir aðstoð annarra við ferðalög með Strætó.

Auk þess að nýtast blindum og sjónskertum getur tæknin komið að gagni fyrir fleiri hópa, svo sem ferðamenn og fólk með lestrarerfiðleika, þar sem upplýsingar eru aðgengilegar á mörgum tungumálum og í hljóðformi.

Innleiðing NaviLens-kóða er því stórt skref í átt að auknu aðgengi og jöfnum tækifærum í samgöngum fyrir alla.

NaviLens er hægt að sækja fyrir Android snjallsíma hér.
NaviLens er hægt að sækja fyrir Apple snjallsíma hér.