Ný Víðsjá er komin út

Í nýjasta tölublaði Víðsjár er meðal annars fjallað um atvinnumál og þær áskoranir sem blindir og sjónskertir standa frammi fyrir á vinnumarkaði, auk spennandi tækninýjunga á borð við gervigreindargleraugu. Þá er rætt við Gísla Helgason, félagsmann Blindrafélagsins, um hvernig hann helgaði líf sitt hljóðbókum – en Gísli er frumkvöðull í málefnum blindra og tónlistarmaður. Í blaðinu er einnig margt annað áhugavert efni.

Ritstjórar eru Marjakaisa Matthíasson og Mónika Elísabet Kjartansdóttir.

Hægt er að hlusta á Víðsjá í vefvarpinu undir liðnum „Efni frá Blindrafélaginu, og Víðsjá, tímarit Blindrafélagsins“.

Einnig er hægt er að skoða og hlusta á blaðið á heimasíðu Blindrafélagsins, blind.is