Evrópuverkefnið Print3D

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu er þátttakandi í Evrópuverkefninu Print3d. Verkefnið fékk Erasmus+ styrk frá Evrópusambandinu og lýkur í september 2019.

Verkefnið felst meðal annars í því að:

  • útbúa kennsluefni og verkefni í þrívíddarprentun fyrir kennara sem þeir geta nýtt í kennslu sinni með því að nota þátttökunám (e. service-learning)
  • innleiða þrívíddarprentun í kennsluna með það að markmiði að hanna og prenta nytsamlega hluti fyrir blinda og sjónskerta, til dæmis kort af skóla, sjúkrahúsum strætóleiðum og fleira
  • aðstoða blinda og sjónskerta við að tileinka sér þrívíddarprentun, þar með talið hönnun, prentun og mat á afurð
  • framleiða hluti sem nýtast blindum og sjónskertum og gefa þá þangað sem þeir nýtast

Þátttökunám er hugmyndafræði sem byggir t.d. á þátttöku í verkefni sem unnið er raunverulegar aðstæður, felur í sér þjónustu við einstaklinga, hópa eða samfélagið almennt og þátttakandinn vinnur samkvæmt námsskrá og fær einingar fyrir. Í þessu verkefni er unnið með þrívíddarprentun þar sem unnin eru verkefni sem nýtast blindum og sjónskertum einstaklingum, t.d. kort af skólum, strætóleiðum og fleira.

Þátttakendurnir í Print3d eru:

  • Mennta- og menningarmálastofnun Valencia-héraðs á Spáni sem leiðir verkefnið
  • BQ frá Spáni sem framleiðir m.a. þrívíddarprentara og farsíma
  • CERB (Centre of Education and Rehabilition for the Blind) frá Grikklandi sem er þjónustumiðstöð fyrir blinda og sjónskerta
  • Look at me sem er einkafyrirtæki frá Lettlandi sem þjónustar blinda og sjónskerta
  • fimm grunnskólar frá Spáni og Grikklandi

Hlutverk Miðstöðvarinnar í þessu verkefni er að búa til kennslubók og leiðbeiningahefti um þrívíddarprentun bæði fyrir kennara og nemendur.

Hægt er að fylgjast með verkefninu á TwitterFacebook og á vef verkefnisins.

Með kveðju,
Elín Marta Ásgeirsdóttir
Náms- og starfsráðgjafi og sérfræðingur í gerð lesefnis.