Fundargögn vegna aðalfundar 

Aðalfundur Blindrafélagsins verður haldinn laugardaginn 6. maí 2017 í samkomusal félagsins að Hamrahlíð 17.

Fundurinn hefst kl. 13 síðdegis.

Ársreikningar Blindrafélagsins og sjóða þess ásamt skýrslu fyrir starfsemi félagsins liggja frammi á skrifstofu félagsins á Hamrahlíð 17.

Gögnin eru aðgegnileg á hefðbundu letri, á word formi og pdf formi, punktaletri og upplesið í hljóðskrá.
 
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

1.    Sigþór U Hallfreðsson formaður félagsins, setur fund.

2.    Kynning viðstaddra.

3.    Kosning fundarstjóra og fundarritara.

4.     Fundargerð síðasta aðalfundar borin upp til samþykktar.

5.    Inntaka nýrra félaga og látinna aðalfélaga minnst.

6.    Skýrslur lagðar fram:

a)     Formaður flytur skýrslu stjórnar.

b)     Umræður um skýrslur.

7. Ársreikningar félagsins og sjóða þess fyrir árið 2015 lagðir fram:

a)   Löggiltur endurskoðandi Blindrafélagsins kynnir efnahags og rekstrarreikninga félagsins.

b)   Umræður um ársreikningana.

c)    Ársreikningur borinn upp til samþykktar.

8. Kosning tveggja aðalmanna og tveggja varamanna í stjórn félagins til
    næstu tveggja ára.

9.  Kosning þriggja einstaklinga  í kjörnefnd og eins til vara.

10. Ákveðið árstillag félagsmanna fyrir næsta almanaksár og gjalddaga    

       þess.

11. Lagabreytingar.

12. Aðalfundur ákveði laun stjórnarmanna.

13. Önnur mál.

14. Fundarslit.

Stjórn Blindrafélagsins