Helmingur Íslendinga er jákvæður fyrir erfðagjöfum til góðgerðarstarfs

Um helmingur þeirra sem svöruðu könnun Maskínu um erfðagjafir eru meðvitaðir um þann möguleika, að ánafna hluta af arfi til góðgerðarfélaga eða góðra málefna. Könnunin var framkvæmd fyrir verkefnið Gefðu framtíðinni forskot, sem er samstarfsverkefni Almannaheilla, Amnesty International, Barnaheilla, Blindrafélagsins, Hjálparstarfs kirkjunnar, Krabbameinsfélagsins, Rauða krossins, SOS barnaþorpa, Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna og UNICEF á Íslandi um að auka vitund almennings á þeim möguleika að ánafna hluta af erfðafé til góðgerðarstarfs.

Í könnunni kemur fram að Íslendingar eru almennt jákvæðir gagnvart því að einstaklingar ánafni hluta af arfi sem erfðagjöf til góðgerðarstarfs. Þannig eru 16,9% mjög jákvæð og 32,1% jákvæð, en aðeins 6,6% fremur neikvæð og 4% mjög neikvæð. Í könnuninni kemur jafnframt í ljós að konur eru heldur jákvæðari gagnvart erfðagjöfum en karlar og einnig að nokkur fylgni er með jákvæðni í garð erfðagjafa og menntun.

Víða í Evrópu er algengt að fólk ánafni hluta af arfi til góðra málefna, til að mynda í Danmörku og í Bretlandi. Á Íslandi hafa erfðagjafir ekki náð að ryðja sér til rúms að sama marki en á því eru þó dýrmætar undantekningar. Erfðagjafir hafa þannig styrkt krabbameinsrannsóknir, stutt við fátæk börn og fjölskyldur í neyð eða veitt flóttamönnum lífsbjargandi hjálp, svo fáein dæmi séu nefnd. Þótt aðeins hluti einstaklinga ánafni hluta af arfi til góðgerðarmála skiptir hver slík gjöf miklu málu og er þar að auki undanskilin erfðafjárskatti.

Sem áður segir var könnunin lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu í lok sumars en alls svöruðu henni 832 einstaklingar.

www.erfdagjafir.is er fræðsluvefur fyrir almenning um erfðagjafir. Þar er fjallað um hvernig sé æskilegt að standa að erfðagjöfum og leitast við að svara algengum spurningum fyrir þá sem vilja kynna sér málið.

Fyrir nánari upplýsingar má leita til:

Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir

Fjáröflunar- og markaðsstjóri Krabbameinsfélagsins

kolbrun@krabb.is 663 9995

 

Ingibjörg Magnúsdóttir

Fjáröflunarstjóri UNICEF

ingibjorg@unicef.is 618 4420

 

Ísabella Ósk Másdóttir

Sérfræðingur á kynningarsviði Rauða krossins

isabella@redcross.is 570 4000

 

Gréta Ingþórsdóttir

Framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna

greta@skb.is 772 6662

 

Ragnar Schram

Framkvæmdastjóri SOS barnaþorpa

ragnar@sos.is 564 2910

 

Kristinn Halldór Einarsson

Framkvæmdastjóri Blindrafélagsins

khe@blind.is 525 0003

 

Bjarni Gíslason

Framkvæmdastjóri Hjálparstarfs Kirkjunnar

bjarni@help.is 528 4402

 

Erna Reynisdóttir

Framkvæmdastjóri Barnaheilla

erna@barnaheill.is 820 7255

 

Rúna Friðriksdóttir

Verkefnastjóri í fjáröflun

runa@amnesty.is 511 7900

 

Hrannar Björn Arnarsson

Framkvæmdastjóri ADHD samtakanna

hrannar@adhd.is 860 6890

 

Jónas Guðmundsson

Formaður Almannaheilla, samtaka þriðja geirans

formadur@almannaheill.is