Íbúð 308 til leigu

Blindrafélagið auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúð 308 í Hamrahlíð 17. Íbúðin er 40 fm. stúdíóíbúð og baðherbergi. Mánaðarleiga er um 115.000 kr. að viðbættu 7.200 kr. húsgjaldi.

Stefnt er að því að íbúðin fari í útleigu fyrrihluta júlí mánaðar 2023.

Leiguíbúðum Blindrafélagsins er úthlutað til félagsmanna á félagslegum forsendum þar sem tillit er tekið til tekna, eigna og félagslegra aðstæðna.

Að gefnu tilefni skal það tekið fram að leiguíbúðir Blindrafélagsins eru ekki þjónustuíbúðir

Umsókn ásamt afriti af skattframtali fyrir 2022 skal sendar í seinasta lagi 30. júní 2023 á netfangið khe@blind.is eða með bréfi á póstfangið:

Blindrafélagið,
BT: Kristinn Halldór Einarsson,
Hamrahlíð 17,
105 Reykjavík