Laus leiguíbúð í Hamrahlíð 17

Blindrafélagið auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúð 407 í Hamrahlíð 17. Íbúðin er 78 fm og skiptist í stofu, eldhús, bað og tvö svefnherbergi. Mánaðarleiga er um 120.000 kr. að viðbættum 6.200 kr. húsgjaldi.

Stefnt er að því að leigja íbúðina út frá og með 1. mars 2020.

Leiguíbúðum Blindrafélagsins er úthlutað til félagsmanna á félagslegum forsendum þar sem tillit er tekið til tekna, eigna og félagslegra aðstæðna.

Að gefnu tilefni skal það tekið fram að leiguíbúðir Blindrafélagsins eru ekki þjónustuíbúðir

Umsókn ásamt afriti af skattframtali 2019 skal sendar í seinasta lagi 24. febrúar 2019 á netfangið khe@blind.is eða með bréfi á póstfangið:

Blindrafélagið,
BT: Kristinn Halldór Einarsson,
Hamrahlíð 17,
105 Reykjavík.