Leiðsöguhundadagatalið fáanlegt í A4

Leiðsöguhundadagatal 2026 er komið í sölu og er fáanlegt í verslunum A4. Dagatalið er ekki bara gagnlegt til að halda utan um mikilvægar dagsetningar – það er líka frábær leið til að styðja við gott málefni.

Þú getur einnig keypt dagatalið beint frá Blindrafélaginu með því að senda póst á afgreidsla@blind.is eða hringt í síma 525-0000.

Allur ágóði rennur í kaup og þjálfun leiðsöguhunda. Sem stendur eru átján leiðsöguhundar starfandi á Íslandi og mikilvægt er að viðhalda þessu mikilvæga verkefni.

Dagatalið er fáanlegt í eftirfarandi verslunum A4: Smáralind, Skeifan, Kringlan (Reykjavík), Fjörður (Hafnarfjörður), Selfoss, Akureyri, Egilsstaðir, Reykjanesbær.

Leiðsöguhundadagatal 2026 með mynd af þremur hvolpum tveimur dökkum og einum ljósum