Styrkir úr sjóðnum Blind börn á Íslandi.

Sjóðurinn veitir einungis styrki vegna atburða og/eða hluta sem eru annars ekki styrktir af almannatryggingum, félagsþjónustu sveitafélaga eða af öðrum stofnunum eða sjóðum sem koma að málum blindra og sjónskertra barna. Stjórn sjóðsins hefur heimild til að úthluta allt að 70% af andvirði þess sem styrkt er. Styrkir vegna tölvukaupa eru takmarkaðir við 50.000 kr. en þó aldrei meira en 70% af andvirði vörunnar. Sé styrks ekki vitjað innan árs fellur hann niður.Sótt er um á eyðublaði sem er hægt er að finna  hér

 og á heimasíðu Blindrafélagsins www.blind.is.

Umsóknir skulu sendar á netfangið kaisa@blind.is

 

Í umsókninni skal lýsa nákvæmlega því verkefni sem sótt er um styrk til og gera grein fyrir mikilvægi þess fyrir barnið auk þess sem kostnaðaráætlun skal fylgja.Umsóknir um styrki þurfa að hafa borist eigi síðar en 30. október 2017.