Sumarhappdrætti Blindrafélagsins 2026 er hafið.

Með þátttöku í sumarhappdrætti Blindrafélagsins styður þú mikilvægt starf fyrir blinda og sjónskerta á öllum aldri – og þar að auki getur þú unnið glæsilega vinninga!!

Hægt er að kaupa happdrættismiða í vefverslun okkar á þessum hlekk.

Bakhjörlum félagsins og þeim sem hafa áður styrkt verða sendar valkröfur í heimabanka á næstu dögum ásamt því að happdrættismiðar fara í dreifingu.

 Þeir sem ekki fá kröfu á næstu dögum en vilja taka þátt geta hringt í síma 525 0000. Miðaverð er 3.900 kr.

Í happdrættinu eru fjölbreyttir vinningar:

  • Kia EV3 frá Öskju að verðmæti kr. 6.090.777
  • 10 gjafabréf frá Erninum, hvert að verðmæti kr. 500.000
  • 50 gjafabréf frá 66°Norður, hvert að verðmæti kr. 100.000
  • 25 ferðavinningar með leiguflugi frá Heimsferðum, hver að verðmæti kr. 300.000
  • 30 Bónusgjafakort, hvert að verðmæti kr. 100.000
  • 15 Samsung Galaxy Tab S11 Wifi 128GB, hver að verðmæti kr. 169.995
  • 15 Samsung Galaxy S26 Ultra 256GB, hver að verðmæti kr. 254.990
  • 15 Samsung Galaxy Flip7 256GB, hver að verðmæti kr. 209.990
  • 50 gjafabréf frá Útilíf, hvert að verðmæti kr. 200.000

Vinningar að verðmæti yfir 46 milljóna króna – tækifærið er núna!

Með kaupum á happdrættismiðum styrkir þú ekki bara happdrættið sjálft heldur einnig mikilvæg verkefni félagsins, til dæmis sjóðina Stuðning til sjálfstæðis og Blind börn á Íslandi.

Blindrafélagið hefur í áratugi, með stuðningi almennings, unnið að bættum réttindum og lífskjörum blindra og sjónskertra á Íslandi.

Upplag: 70.000.

Dregið verður 22. júní 2026. 

 

Stuðningur þinn skiptir máli!

 

Til upplýsinga:

 

Þegar happdrættismiði er keyptur í gegnum valkröfu í heimabanka birtist miðanúmerið ekki alltaf beint sem „miðanúmer“. Það getur verið skráð á mismunandi hátt eftir bönkum:

  • Í sumum bönkum kemur miðnúmerið fram sem seðilnúmer.
  • Í öðrum tilvikum er miðnúmerið síðustu tölustafirnir í kröfunúmerinu.

Dæmi:

  • Kröfunúmer: xxx xxxx 9012 → miðnúmer gæti verið 9012
  • Kröfunúmer: xxxx xxxx 1122 → miðnúmer gæti verið 1122
  • Ef „seðilnúmer“ er sýnt, þá er það sjálft miðnúmerið.
  • Best er að skoða þetta í heimbanka á vafra. 

Ef einhver vafi er á hvað er rétt miðanúmer er alltaf hægt að:

  • Hringja í afgreiðslu í síma 525 0000
  • Eða senda kennitölu á afgreidsla@blind.is og fá miðnúmerið staðfest.

Við hjálpum þér með ánægju!