Úthlutun úr Stuðningi til sjálfstæðis - styrktarsjóði Blindravinafélags Íslands og Blindrafélagsins haustið 2026.

Úthlutun úr Stuðningi til sjálfstæðis – styrktarsjóði Blindravinafélags Íslands og Blindrafélagsins haustið 2026.

Þann 6. nóvember kom stjórn Styrktarsjóðs Blindravinafélags Íslands og Blindrafélagsins Stuðningur til sjálfstæðis saman.

Á dagskrá var afgreiðsla styrkumsókna sem bárust eftir að auglýst hafði verið eftir styrkumsóknum.

Alls bárust 13 umsóknir upp á 4.343.990 kr.

Eftirfarandi styrkúthlutanir voru samþykktar:

A - flokkur. Náms-, ferða- og ráðstefnustyrki til fagfólks sem starfar með blindum og sjónskertum einstaklingum eða vinna að hagsmunamálum þeirra.

Engin gild umsókn barst í A – flokki.

Samtals úthlutað í A - flokki: 0 krónur.

B - Flokkur. Náms-, ferða-, endurhæfingar- og ráðstefnustyrki til félagsmanna Blindrafélagsins.

Engin umsókn var samþykkt í B – flokki.

Samtals úthlutað í B - flokki: 0 krónur.

C - flokkur. Styrki til félagsmanna Blindrafélagsins til kaupa á hjálpartækjum.

  • Adilson Ramos Duarte - 75.000 kr.
  • Ívar Örn Ívarsson - 75.000 kr.
  • Kristinn Helgi Ólafsson - 75.000 kr.
  • Rósa María Hjörvar - 75.000 kr.
  • Sigurður Gunnsteinsson - 75.000 kr.

Samtals úthlutað í C - flokki: 375.000 krónur. 

D - flokkur. Styrki til verkefna sem eru hagsmunum blindra og sjónskertra til framdrátta.

  • Harpa Fönn Sigurjónsdóttir 550.000 - Sjónlýsing. 

Samtals úthlutað í D-flokki 550.000 krónur.

Alls úthlutað 925.000 krónur.