Þann 15. október á Degi hvíta stafsins, standa Sjónstöðin og Blindrafélagið fyrir málþingi um punktaletur í sal Blindrafélagsins á 2. hæð að Hamrahlíð 17. Notendur og fagfólk fjalla þar um punktaletur, stiklað verður á stóru í sögu þess á Íslandi og rædd staða punktaleturs í dag, ásamt þeim áskorunum og tækifærum sem fram undan eru. Einnig verður boðið upp á að skoða ýmsa tækni og lausnir sem eru í boði fyrir punktaletursnotendur og gefst góður tími til umræðna í lok málþingsins.
Málþingið hefst kl. 16.00 og lýkur í síðasta lagi kl. 18.00.
Fyrir málþingið býður Blindrafélagið upp á kaffiveitingar kl. 15.30 í tilefni af degi hvíta stafsins, sem haldinn er hátíðlegur 15. október ár hvert. Dregið verður í happdrætti úr hópi þeirra sem mæta með hvítan staf í hendi. Til að auðvelda skipulag og áætla fjölda er beðið um skráningu í kaffið á netfangið afgreidsla@blind.is.
Dagskrá málþingsins.
kl. 15.30 Kaffiveitingar í boði Blindrafélagsins.
kl. 16.00 Setning málþings, Halldór Sævar Guðbergsson, stjórnarmaður Blindrafélagsins.
kl. 16.10 Saga og þróun punktaletursins á Íslandi og hvernig ég kynntist því, Gísli Helgason.
kl. 16.20 Punktaletur er lykilinn, Cristina-Elena Furdui.
kl. 16.30. Punktaletur í öllum hornum í 50 ár, hvernig væri lífið án lesmáls? Ágústa Eir Gunnarsdóttir.
Kl. 16.40 Punktaletur í daglegu lífi - nám, tækni og afþreying. Ásta Björnsdóttir og Heiður Baldursdóttir.
kl. 16.45 Kaffihlé.
kl. 17.00 Snerta, skoða, uppgötva – Leið barnsins að punktaletrinu, Rannveig Traustadóttir.
kl. 17.15 Framtíð punktaletursins: Tækifæri og sóknarfæri, Hjalti Sigurðsson.
kl. 17.30 Opnar umræður.
kl. 18.00 Málþingi lýkur.