Vorhappdrætti 2018

Sala á miðum fyrir vorhappdrætti Blindrafélagsins er hafin.

 

Mynd af happdrættismiðanum

Velunnurum félagsins hafa verið sendir miðar í pósti og þeir munu jafnframt birtast í heimabanka viðkomandi sem valkrafa. Þeir sem kjósa að styrkja Blindrafélagið með miðakaupum, miðaverð 2900 kr., eiga möguleika á að vinna einhvern eftirtalinna vinninga:

  • Renault Megane Zen, dísil, sjálfskiptur, bíll frá BL að verðmæti kr. 3.350.000.
  • Nissan Micra Tekna, bensín, beinskiptur, bíll frá BL að verðmæti kr. 2.690.000.
  • 30 ferðavinningar með leiguflugi frá Heimsferðum, hver að verðmæti kr. 300.000.
  • 30 Samsung Galaxy S9+ snjallsímar, hver að verðmæti kr. 144.990.
  • 30 Samsung Galaxy S9 snjallsímar, hver að verðmæti kr. 129.990.       
  • 30 Samsung Galaxy TAB S3 WiFi 4G spjaldtölvur, hver að verðmæti kr. 104.900.
  • 30 gistivinningar fyrir 2 í tvær nætur ásamt morgunverði, auk kvöldverðar annað kvöldið á einhverju Fosshótelanna, hver að verðmæti kr. 87.400. 

Alls 152 skattfrjálsir vinningar að verðmæti kr. 29.058.400

Útgefnir miðar eru 60.000.

Dregið verður í happdrættinu 11. júní 2018.