Fundargerð aðalfundar Blindrafélagsins, haldinn laugardaginn 10. maí 2025.
Fundarsetning.
Formaður Blindrafélagsins, Sigþór U. Hallfreðsson, setti fundinn kl. 13:05.
Formaðurinn fór stutt yfir gott gengi hjá félaginu og vinnustofunni og þakkaði starfsfólkinu fyrir.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Formaður lagði til að Hjörtur Heiðar Jónsson yrði kosinn fundarstjóri og að Baldur Snær Sigurðsson yrði fundarritari og tæknistjóri. Tillagan var samþykkt.
Kynning fundarmanna.
Fundarmenn kynntu sig með nafni. Alls sóttu 33 félagsmenn fundinn: 29 í salnum og 4 rafrænt.
Fundargerð síðasta aðalfundar borin upp til samþykktar.
Fundarstjóri las upp atriði 14 úr síðustu fundargerð sem breytt var stuttu fyrir aðalfund eftir ábendingar. Fundargerðin var samþykkt samhljóða.
Inntaka nýrra félaga.
Lesin voru upp nöfn nýrra félagsmanna, alls 66 talsins. Þeir voru samþykktir í félagið.
Látinna félaga minnst.
Lesin voru upp nöfn félagsmanna sem létust á árinu. Þeir voru 46 talsins. Látinna var minnst með einnar mínútu þögn.
Skýrsla stjórnar um störf félagsins á síðastliðnu ári.
Formaðurinn flutti skýrsluna og fór yfir hverjir hefðu setið í stjórn og varastjórn síðasta kjörtímabil og fékk Halldór Sævar sérstakar þakkir fyrir sín störf sem lauk núna á þessum aðalfundi. Hann fór einnig yfir starfsmannastefnu félagsins en 20 starfsmenn vinna hjá félaginu og af þeim eru 13 blindir eða sjónskertir. Tveir félagsfundir voru haldnir á starfsárinu. Fyrri fundurinn var um breytingar á örorkukerfinu sem taka gildi 1. september 2025, síðari fundurinn var um innra starf félagsins. Fjáraflanir eru félaginu mjög mikilvægar, en um 60% af rekstrarfé kemur í gegnum þær og að mestu frá almenningi. Orðspors- og traustmælingar sýna gott traust sem almenningur ber til félagsins.
Formaðurinn fór svo yfir breytingar, viðhaldið og framkvæmdirnar sem hafa verið gerðar á Hamrahlíð 17 undanfarin ár. Nefndi hann að ferðaþjónusta Blindrafélagsins væri ein mikilvægasta þjónustan sem við njótum. Nú eru um 719 notendur í þjónustunni í 15 sveitarfélögum. Félagið heldur áfram sínu samstarfi bæði innan lands og utan. Félagið stendur einnig fyrir mikilli útgáfu og má þar nefna Víðsjá, Hljóðbrot, fréttabréfið, Facebook-síðu félagsins, Instagram-síðu og fleiri miðla.
Trúnaðarmenn félagsins eru mikilvægir í okkar starfi í þágu félagsins. Þeir hafa samband við félagsmenn, veita stuðning og brjóta einangrun.
Fór svo formaðurinn yfir félagsstarfið sem er í gangi hjá félaginu, nýju opnu tæknifundina sem byrjuðu í vetur, talgervilsrödd í Apple símum, útgáfu leiðbeininga fyrir lagningu leiðarlína innanhúss, umferlinámið sem haldið var í samvinnu við Sjónstöðina og færnibúðirnar með Sjónstöðinni og Íþróttafélagi fatlaðra.
Árið 2024 framreiddi Katla 5700 máltíðir fyrir félagsmenn og fékk Katla lófaklapp fyrir.
Sigþór þakkaði að lokum starfsfólki og stjórnendum Blindrafélagsins og Blindravinnustofunnar, og félagsfólki sem haldið hefur uppi öllu félagsstarfi, fyrir vel unnin og góð störf í fyrra.
Umræður um skýrslu stjórnar:
Gísli Helgason kom í pontu og vildi ræða miklar framkvæmdir í Hamrahlíð 17. Einhverjir félagsmenn eru ekki sáttir. Gísli segir að Blindrafélagið sé að gera þjóðinni og félaginu mikinn greiða með þessum framkvæmdum við Hamrahlíð 17.
Konráð Einarsson var með athugasemd varðandi lyfturnar, en merkingarnar fyrir framan lyfturnar sem segja til um á hvaða hæð þær eru sjást illa.
Sigþór brást við þessari ábendingu frá Gísla og tók undir ástæðurnar.
Kynning og afgreiðsla ársreikninga félagsins og sjóða sem eru í eigu félagsins.
Gerður Þóra Björnsdóttir endurskoðandi hjá KPMG fór yfir reikninga félagsins og verkefnasjóðs. Heildarvelta félagsins 2024 nam 356,8 milljónum sem er 11,1% aukning frá 2023. Hagnaður ársins að meðtöldum fjármagnsliðum og afskriftum nam 9,7 milljónum í samanburði við 5,8 milljón króna tap árið 2023.
Umræður og spurningar:
Áður en opnað var fyrir umræður um reikninga tók fundarstjóri fram að borist hefði skrifleg fyrirspurn fyrir fundinn frá Svavari Guðmundssyni og las fundarstjóri fyrirspurnina upp.
Gísli Helgason kom með dagskrárbreytingartillögu og fékk meðmælendur svo hún var tekin fyrir. Honum fannst með ólíkindum að þessa fyrirspurn ætti að taka fyrir þar sem spyrjandi er ekki á fundinum og fannst honum ótækt að menn geti sent inn hinar og þessar skriflegu fyrirspurnir. Sagði Gísli þetta vera hugleysi og ætti ekki að líðast á aðalfundi Blindrafélagsins. Gísli fékk lófaklapp fyrir. Hann benti jafnframt á að það kæmi skýrt fram í ársreikningum félagsins hvað formaður og framkvæmdastjóri væru með í laun og lagði til að dagskrárbreytingartillagan yrði samþykkt.
Fundarstjóri opnaði mælendaskrá um tillögu Gísla um að vísa fyrirspurninni frá.
Sigþór tók til máls og vildi meina að það rétta væri bara að svara fyrirspurninni. Hann tók undir orð Gísla en vildi að fyrirspurnin yrði tekin fyrir en annars myndi hann leggja hana fyrir sjálfur. Hann lagði því til að dagskrártillögunni yrði hafnað og fyrirspurninni svarað.
Guðrún Skúla tók undir með Gísla og sagði að fólk ætti að mæta sjálft á fundinn með svona fyrirspurnir.
Kristinn Halldór Einarsson tók fram að hann hefði þurft að sitja undir þessum fyrirspurnum í nokkur ár og þakkaði Gísla fyrir hvatninguna. Hann lagði hins vegar til að fyrirspurninni yrði svarað enda búið að taka saman upplýsingarnar.
Guðrún Guðbjörns kom með athugasemd um mikilvægi heilsuklúbbsins.
Guðrún Skúla þakkaði einnig fyrir heljarmannafélagið og annað heilsustarf innan þess og sagði að það væri mjög gefandi.
Baldur Snær þakkaði Gísla fyrir þessa dagskrárbreytingartillögu og studdi hana. Hann taldi þó að það væri ekkert því til fyrirstöðu að þær upplýsingar sem teknar hafa verið saman kæmu fram í almennum umræðum um reikninga félagsins.
Fundarstjóri lagði dagskrárbreytingartillöguna fram í atkvæðagreiðslu og var hún samþykkt með meginþorra atkvæða gegn einu. Fyrirspurnin var tekin af dagskrá.
Opnuð var mælendaskrá um reikninga félagsins:
Baldur Snær spurði um þessa breytingu sem hafði verið gerð á framsetningu reikninga félagsins sem Kristinn framkvæmdastjóri kom inn á og bað um nánari útskýringu frá bókara félagsins á því hvað þær væru og hvernig þær kæmu nú fram í reikningum félagsins.
Kristín svaraði hvaða breytingar hefðu verið gerðar í reikningum félagsins. Búið er að sundurliða launakafla betur í skýringu 12 á blaðsíðu 16. Búið er að bæta við fjölda starfsmanna og stöðugilda og upplýsingum um hver meðallaun hvers stöðugildis eru. Þar koma einnig fram laun framkvæmdastjóra og laun stjórnarformanns.
Kristín fór yfir kostnað og hlunnindi að beiðni Sigþórs til að fyrirspurninni yrði fullsvarað. Fyrir utan laun fær framkvæmdastjóri greitt fyrir ferðaþjónustu, farsíma og internettengingu og formaður fær ferðaþjónustuna greidda.
Kristinn framkvæmdastjóri bað um að launastefna yrði lesin. Kristín bókari las hana en hana er einnig að finna í reikningum félagsins á sömu blaðsíðu og skýringarnar.
Sigþór bað um orðið og útskýrði afstöðu sína gagnvart því að koma fram með þessar upplýsingar.
Fundarstjóri bar svo reikningana upp til samþykkis og voru þeir samþykktir samhljóða.
Kosningar til stjórnar.
Í framboði til stjórnar eru: Guðmundur Rafn Bjarnason, Kaisu Kukka-Maaria Hynninen, Unnur Þöll Benediktsdóttir og Þorkell Jóhann Steindal. Þau fengu öll tækifæri til að kynna sig. Tekið var fundarhlé eftir kynningarnar og kosningar kláraðar.
Eftir fundarhlé voru úrslit kosninga kynnt:
Unnur Þöll Benediktsdóttir, 39 atkvæði.
Þorkell Jóhann Steindal, 36 atkvæði.
Guðmundur Rafn Bjarnason, 29 atkvæði. Kaisu Kukka-Maaria Hynninen, 28 atkvæði.
Unnur og Þorkell taka því sæti sem aðalmenn í stjórn félagsins og Guðmundur og Kaisu taka sæti varamanna.
Árstillag félagsmanna og gjalddagi þess.
Tillaga frá stjórn er að árstillaga verði óbreytt. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Kosning í kjörnefnd.
Tillaga stjórnar er að í kjörnefnd sitji Brynja Arthursdóttir, Gísli Helgason og Harpa Völundardóttir, Hjalti Sigurðsson til vara. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Aðalfundur ákveður laun stjórnarmanna.
Stjórn leggur til við aðalfund að fyrirkomulag við greiðslu þóknunar fyrir fundarsetu fyrir fulltrúa í stjórn Blindrafélagsins taki mið af viðmiðum þóknunarnefndar ríkisins og verði með eftirfarandi hætti: Stjórnarmenn Blindrafélagsins og varamenn fá greiddar 4 einingar fyrir hvern setinn stjórnarfund. Upphæð þóknunar tekur mið af ákvörðun þóknananefndar ríkisins.
Sigþór fylgir tillögunni eftir og gerir grein fyrir henni. Þetta er speglun af því sem ÖBÍ er að nota. 4 einingar gera rúmlega 12.000 kr. fyrir hvern fund.
Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Önnur mál.
Tvær ályktanir stjórnar liggja fyrir fundinum og formaður kynnti þær. Tillögurnar er að finna hér aftast í þessari fundargerð. Fundarstjóri las fyrstu ályktunina varðandi Hljóðbókasafnið fyrir fundinn og opnaði á umræður um hana.
Gísla Helgasyni finnst þetta ágætis tillaga en orðið „Heim“ kemur of oft fyrir og vill láta laga það. Hann vildi meina að ártöl í ályktuninni gætu verið röng og vildi að þau yrðu skoðuð.
Sigþór lagði til að ályktunin yrði samþykkt með þessum fyrirvara að ártalin og orðalag yrðu skoðuð.
Ályktunin var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Fundarstjóri las ályktun tvö um réttlátara samfélag fyrir fundinn og opnaði fyrir umræður um hana að lestri loknum. Engar umræður urðu um ályktunina og var hún borin upp til samþykktar. Ályktunin var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Fundarstjóri opnaði fyrir önnur mál.
Margrét formaður Ungblindar kom með athugasemd varðandi Hreyfil. Hún vill skoða hvort Blindrafélagið vilji ekki gefa einhverja stuðningsyfirlýsingu við Hreyfil og þeirra starfsmenn sem eru góðir vinir okkar og sjá um ferðaþjónustuna fyrir okkur.
Sigþór svaraði fyrirspurninni og benti á að Blindrafélagið hefði gert athugasemd við breytingar á lögunum sem fóru í gegn fyrir 2 árum. Við erum í góðum samskiptum við Hreyfil og munu stjórn og framkvæmdastjóri senda stuðningsyfirlýsingu frá aðalfundi Blindrafélagsins til stjórnar Hreyfils með þökk fyrir góða þjónustu.
Kristinn tók til máls og nefndi annað mál varðandi Hreyfil um námskeiðin sem eru haldin fyrir nýja bílstjóra. Nú hefur Samgöngustofa gert einhverja kröfu um að þessi námskeið verði gerð á ensku. Blindrafélagið vill frekar skoða að halda námskeið fyrir Hreyfilsbílstjóra hér hjá okkur. Þetta mál er í skoðun.
Fundarstjóri tók saman tillögurnar og setti þær fram til samþykktar.
Tillaga eitt var að stjórn Blindrafélagsins setji sig í samband við Hreyfil og komi því áleiðis að Blindrafélagið muni styðja félagið í baráttu þess fyrir breyttum lögum um leigubílaakstur. Tillagan var samþykkt.
Tillaga tvö um námskeiðin er sett í hendur skrifstofu að skoða málið nánar og finna góða lendingu fyrir þessi námskeið með Hreyfli.
Þorkell vildi leggja áherslu á umferli og tækni og vill að Blindrafélagið leggi áherslu á að Navilens-væða húsið í Hamrahlíð 17 nú þegar framkvæmdum er að ljúka.
Formaður sleit fundi kl. 15:57.
Fundargerð ritaði Baldur Snær Sigurðsson.