Úthlutun úr styrktarsjóði Blindravinafélags Íslands og Blindrafélagsins -Stuðningur til sjálfstæðis

Stjórn Stuðnings til sjálfstæðis kom saman 14. október 2019 til að fara yfir umsjóknir um styrki úr sjóðnum, sem að auglýst var eftir í september mánuði.

Eftirfarandi styrkúthlutanir  voru samþykktar:

A - flokkur. Náms- ferða- og ráðstefnustyrki til fagfólks sem starfa með blindum og sjónskertum einstaklingum, eða vinna að hagsmunamálum þeirra.

  • Þjónustu og þekkingarmiðstöðin vegna þátttöku tveggja starfsmanna í Norrænni ráðstefnu í Malmö 300.000 krónur.

Samtals úthlutað í B-flokki 300.000 krónur.

B - Flokkur. Náms-, ferða-, endurhæfingar- og ráðstefnustyrki til félagsmanna Blindrafélagsins.

  • Eyþór Kampan Þrastarson. Þátttaka i þingi Bandarísku blidrasamtakanna (NFB). 190.000 krónur.
  • Svavar Guðmundsson. Ferðakostnaður vegna heimsóknar til Londin til að skoða hjálpartæki 85.000 krónur. 

Samtals úthlutað í B-flokki: 275.000 kónur.

C - flokkur. Styrki til félagsmanna Blindrafélagsins til kaupa á hjálpartækjum.

  • Anna Kristín Gunnarsdóttir 75.00 krónur.
  • Daníel Anton Benediktssion 75.000 krónur.
  • Margrét Guðný Hannesardóttir 75.000 krónur.
  • Ragnheiður Sveinsdóttir  75.000 krónur.
  • Hannes Axelsson: 55.789 krónur.
  • Svavar Guðmundsson: 75.000 krónur.
  • Margrét Helga Jónsdóttir: 75.000 krónur.

 Samtals úthlutað í C - flokki:   450.000 krónur.

D.- Flokkur. Verkefnastyrkir til verkefna sem eru hagsmunum blindra og sjónskertra til framdráttar.

  • Trimmklúbburinn Edda. Sundleikfimi fyrir félagsmenn. 100.000 kr.  

Í heildina var úthlutað 1.125.000 krónum.