Bókmenntaklúbburinn

Bókmenntaklúbburinn hittist þriðjudaginn 3. mars í fundarherberginu á annarri hæð í Hamrahlíð 17. Við byrjum klukkan hálf þrjú og hættum korter fyrir fjögur. Bókin sem við ætlum að spjalla um heitir Dúkkuverksmiðjan eftir höfundinn Júlíu Margréti Einarsdóttur.

Öll eru velkomin í klúbbinn. 

Kær kveðja,
Brynja Arthúrsdóttir.