Félagsfundur

Félagsfundur 12. nóvember 2026.
 
Stjórn Blindrafélagsins boðar til félagsfundar fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 16:00. Fundurinn verður í sal Blindrafélagsins á 2. hæð í Hamrahlíð 17.
 
Fundinum verður streymt í vefvarpinu og í gegnum Teams og er hægt að senda fyrirspurnir inn á fundinn gegnum Teams-spjallið.
 
Dagskrá:
1. Fundarsetning.
2. Kynning fundargesta.
3. Kjör starfsmanna fundarins.
4. Afgreiðsla fundargerðar síðasta félagsfundar.
5. Gervigreindin – tækifæri og áskoranir.
6. Önnur mál.
 
Mikilvægt er að skrá sig á fundinn hjá skrifstofu Blindrafélagsins, á netfangið afgreidsla@blind.is eða í síma 525 0000. Skrá sig þarf sérstaklega til að fá Teams-fundarboð.
 
Fundargerð síðasta félagsfundar má finna neðst í fréttabréfinu og á heimasíðu Blindrafélagsins.
 
Stjórn Blindrafélagsins.