Félagsfundur

Stjórn Blindrafélagsins boðar til félagsfundar miðvikudaginn 15. október, á degi hvíta stafsins, klukkan 16:30.

Fundurinn verður í sal Blindrafélagsins á 2. hæð í Hamrahlíð 17. Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta á fundinn geta skráð sig á fjarfund. Fundinum verður einnig streymt í vefvarpinu.

Á fundinum verður tekin til umræðu áform um sameiningu Hljóðbókasafns Íslands, Kvikmyndasafns Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.

Mikilvægt er að skrá sig á fundinn hjá skrifstofu Blindrafélagsins, á netfangið afgreidsla@blind.is eða í síma 525 0000.