Jóla-Opið hús með Baggalút

Jóla-Opið hús verður haldið laugardaginn 12. desember. Húsið opnar kl. 10:30 og dagskráin hefst kl. 11:00.
Gestir okkar að þessu sinni verða Vera Illugadóttir, dagskrárgerðarmaður hjá RÚV og rithöfundur, og hljómsveitin Baggalútur.
Klukkan 12:00 verður boðið upp á kalt hangikjöt með tilheyrandi meðlæti. Máltíðin kostar 4.000 kr. á mann og innifalið er vatn og gos. Bjór og léttvín verða seld á vægu verði.

Að loknum hádegisverði stígur Baggalútur á stokk og sér til þess að koma okkur rækilega í jólaskap sem ætti að endast langt fram yfir þrettándann!

Mætum sem flest og eigum saman notalega jólastund með góðum mat, Veru Illugadóttur og jólatónlist að hætti Baggalúts.

Skráning fer fram í síma 525 0000 eða á afgreidsla@blind.is. Skráningarfrestur er til fimmtudagsins 10. desember.