Jólahlaðborð Blindrafélagsins verður haldið laugardaginn 28. nóvember. Framundan er notalegt kvöld með góðum mat, söng, jólasögu og skemmtun. Kór Blindrafélagsins kemur okkur í jólaskap með nokkrum sérvöldum jólalögum og séra Bjarni Karlsson les stutta jólasögu. Skemmtikraftur kvöldsins er enginn annar en Páll Óskar Hjálmtýsson. Húsið opnar kl. 18:00 og þurfa allir gestir að vera mættir og komnir í sæti kl. 18:45. Borðhaldið hefst kl. 19:30 og miðaverðið er 10.500 kr. Boðið verður upp á úrval hátíðarrétta.
Veitingarnar koma frá Kokkunum eins og hér er matseðill kvöldsins:
Forréttir
Karrísíld.
Jólasíld.
Fennel-grafinn lax með sinneps-dillsósu.
Villibráðarpâté með hreindýri og villigæs, borið fram með Cumberland-sósu.
Dönsk lifrarkæfa með beikoni og sveppum.
Aðalréttir
Purusteik með sykurbrúnuðum kartöflum.
Hangikjöt með uppstúf og kartöflum.
Villibráðarbollur í villisveppa- og rifsberjasósu.
Sinnepsgljáður hamborgarhryggur.
Meðlæti
Nýbakað brauð, laufabrauð, rúgbrauð og smjör.
Heimalagað rauðkál.
Grænar baunir.
Kartöflusalat.
Eplasalat.
Eftirréttir
Riz à la mande með berjasósu.
Súkkulaðibrownie með vanillukremi.
Skráning fer fram hjá skrifstofu Blindrafélagsins í síma 525 0000 eða með tölvupósti á afgreidsla@blind.is. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 25. nóvember.
Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga saman notalegt kvöld í sannkölluðu jólaskapi.
Jólakveðjur,
Skemmtinefndin.