Jólahlaðborð Blindrafélagsins

Jólahlaðborð Blindrafélagsins verður haldið laugardaginn 7. desember næstkomandi. Húsið opnar kl. 18:00 og borðhald hefst kl. 19:00. Verð á mann er 5.500 kr.

Veislustjóri kvöldsins verður Herdís Hallvarðsdóttir.
Tónlistargestir verða þeir Hlöðver Smári Oddson og Friðrik Örn Sigþórsson úr hljómsveitinni Melophobia.

Kokkarnir Veisluþjónusta sjá um matinn fyrir okkur. Í boði verður:
Forréttir: Fennel grafinn lax með sinneps-dillsósu. Villibráðarpaté með hreindýri og villigæs með Cumberlandsósu. Karrísíld. Jólasíld. Hangikjöt með uppstúf og kartöflum. Dönsk lifrarkæfa með beikoni og sveppum. Sinnepsgljáður Hamborgarhryggur.
Heitt: Purusteik með sykurbrúnuðum kartöflum. Ofnbakað lambalæri með garðablóðbergi og hvítlauk. Villibráðarbollur í villisveppa og rifsberjasósu.
Meðlæti: Nýbakað brauð, laufabrauð, rúgbrauð og smjör. Heimalagað rauðkál, grænar baunir, kartöflusalat og eplasalat.
Eftirréttir: Riz a la mande með berjasósu. Súkkulaðikaka með vanillukremi.

Í samræmi við umræðuna á degi hvíta stafsins 15. október síðastliðin, viljum við hvetja félagsmenn sérstaklega til að mæta með stafinn á viðburðinn. Þeir sem eru með Hvíta stafinn meðferðis gætu átt von á glaðning.

Skráning er hafin á skrifstofu félagsins í síma 525-0000 eða með að senda póst á netfangið afgreidsla@blind.is. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 4. desember. Félagsmenn Blindrafélagsins, fjölskyldur þeirra og vinir eru hjartanlega velkomnir.

Jólakveðjur.
Skemmtinefnd Blindrafélagsins.