Jólahlaðborð Blindrafélagsins

Jólahlaðborð Skemmtinefndar verður haldið 6. desember næstkomandi í sal Blindrafélagsins í Hamrahlíð 17.

Húsið opnar klukkan 18:00, borðhald hefst klukkan 19:00. Maturinn kemur frá Kokkunum líkt og undanfarin ár og má sjá matseðilinn hér að neðan.

Við fáum BjartSýni kór Blindrafélagsins til að syngja nokkur lög. Mun kórinn byrja á söngnum klukkan 18.30 þannig að það er betra að mæta snemma til að missa ekki af honum. Hjónin Sigurður og Ingibjörg munu koma og syngja nokkur jólalög eftir borðhald. Mun síðan okkar eina og sanna Íva Adrichem syngja fyrir okkur nokkur lög og mun Theódór Kristinsson spila undir hjá henni. Theódór mun síðan spila áfram eitthvað eftir kvöldi.

Miðaverð er 9.500 krónur og skráning er hafin í gegnum skrifstofu Blindrafélagsins á netfangið afgreidsla@blind.is eða í síma 525 0000. Skráningu lýkur 3. desember.

Verið tímalega með skráningu því síðasta jólahlaðborð var fullt.
 

Matseðill:

Forréttir:
Villigæsa mousse með rauðlaukssultu, Fannel grafinn lax með sinneps dillsósu,
Villibráðarpaté með hreindýri og villigæs með cumberlandsósu, Karrísíld, Jólasíld, Confit elduð andalæri með perlulauk, sveppum og rótargrænmeti,
Sjávarréttapaté með reyktum laxi og rjómaosti ásamt piparrótarsósu,
Dönsk lifrarkæfa með beikoni og sveppum.

Aðalréttir:
Purusteik með sykurbrúnuðum kartöflum,
Appelsínugljáðar kalkúnabringur með rauðvínssósu,
Hangikjöt með uppstúf og kartöflum,
Sinnepsgljáður hamborgarhryggur.

Meðlæti:
Nýbakað brauð, laufabrauð, rúgbrauð og smjör,
Heimalagað rauðkál, grænar baunir, kartöflusalat og eplasalat.

Eftirréttir:
Riz a la mande með berjasósu.
Marengsbomba með ensku kremi og jarðaberjum,
Súkkulaðibrownie með vanillukremi.

Með bestu kveðjum,
Skemmtinefndin.