Opið hús á fimmtudegi

Blindrafélagið er með Opið hús þriðjudaga og fimmtudaga í sal félagsins í Hamrahlíð 17 á annarri hæð. Allir félagar eru hjartanlega velkomnir í Opið hús og sjálfsagt er að taka með sér vin eða vandamenn. Opnu húsin hefjast kl. 13:00.

Dagskrá fyrir opið hús er hægt að skoða hverju sinni í fréttabréfi Blindrafélagsins og í vefvarpinu.

Opið hús er sent út í beinni útsendingu í Vefvarpinu fyrir þá sem eru á landsbyggðinni eða sjá sér ekki fært að mæta í húsið. Hægt er að hlusta á Opið hús í Vefvarpinu undir liðnum „Efni frá Blindrafélaginu“ og „Bein útsending úr sal félagsins“. Einnig er hægt að hlusta á eldri Opin hús undir liðnum „Efni frá Blindrafélaginu“, „Opið hús, viðburðir og ýmislegt annað efni“.