Opinn tími með tölvu og tækni ráðgjöfum

Mánudaginn 17. mars næstkomandi kl. 14:00, verður opinn tími með tækniráðgjöfum Blindrafélagsins og Sjónstöðvarinnar. Við munum hittast í salnum í Hamrahlíð 17 á annarri hæð. Tímarnir eru opnir öllum og eru allir hjartanlega velkomnir.
 
Í byrjun tímans ætlum við að halda smá sýnikennslu á skjálestri fyrir tölvur og snjallsíma. Hvernig skjálestur er notaður og hvernig hann virkar og hverjir gætu nýtt sér hann. Síðan verður opinn spurningartími og frjálsar umræður til kl. 15:00.
 
Eftir kl. 15:00 verður boðið upp á kaffi og spjall og aðstoð frá tækniráðgjöfum. Það er velkomið að taka með sér tölvur, síma og tæki sem ykkur vantar aðstoð með, en einnig er öllum hjartanlega velkomið að mæta og hitta aðra. Þetta er gott tækifæri til að sækja sér jafningjastuðning og heyra frá öðrum hvernig þeim gengur að nota sín tæki og tól.
 
Hlökkum til að sjá ykkur.
Baldur Snær Sigurðsson, tækniráðgjafi Blindrafélagsins.
Helena María Agnarsdóttir, Tölvu- og tækni ráðgjafi Sjónstöðvarinnar.