Miðvikudaginn 14. maí verður opinn tæknifundur í salnum á annarri hæð í Hamrahlíð 17, og hefst hann kl. 15:00.
Þema fundarins er tileinkað iPhone símanum sem sumir félagsmenn hafa kosið fram yfir Android. Við fáum frásögn frá notanda sem hefur nýverið skipt frá Android yfir í iPhone og fáum að heyra frá notendum sem nota skjálestrar viðmót og þeim sem nýta sjónleifar. Farið verður yfir almenna notkun og virkni sem IPhone hefur sem ekki er til staðar í Android. Hingað til hefur það verið farartálmi að ekki hefur fengist góður íslenskur talgervill fyrir Apple vörur, en nú er fyrirtækið Grammatek með talgervilsröddina Stein í prófun og hann væntanlegur til almennrar dreifingar fljótlega. Af því tilefni hvetjum við alla til að mæta og kynna sér málið.
Fundarstjóri verður Þorkell Jóhann Steindal.
Baldur Snær Sigurðsson, tækniráðgjafi Blindrafélagsins og Helena María Agnarsdóttir, Tölvu- og tækni ráðgjafi Sjónstöðvarinnar, verða líka á fundinum og geta einnig svarað spurningum og aðstoðað notendur með vandamál að fundi loknum.