Þriðjudaginn 10. febrúar næstkomandi kl. 14:45, verður opinn tími með tækniráðgjöfum Blindrafélagsins og Sjónstöðvarinnar. Við munum hittast í salnum í Hamrahlíð 17 á annarri hæð. Tímarnir eru opnir öllum og allir hjartanlega velkomnir.
Í þessum hitting ætlum við að vera með opið spjall og halda áfram að læra á Blindshell símann og Vefvarpið.
Boðið verður boðið upp á kaffi og spjall og aðstoð frá tækniráðgjöfum. Það er velkomið að taka með sér tölvur, síma og tæki sem ykkur vantar aðstoð með, en einnig er öllum hjartanlega velkomið að mæta og hitta aðra. Þetta er gott tækifæri að mæta og sækja sér jafningjastuðning og heyra frá öðrum hvernig þeim gengur að nota sín tæki og tól.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Baldur Snær Sigurðsson, tækniráðgjafi Blindrafélagsins.
Helena María Agnarsdóttir, Tölvu- og tækni ráðgjafi Sjónstöðvarinnar