Ráðstefnu um heilatengda sjónskerðingu, CVI

Blindrafélagið í samstarfi við Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu boða til Ráðstefnu um heilatengda sjónskerðingu, CVI.

Heilatengd sjónskerðing (CVI) er sjónskerðing sem orsakast af skemmdum á sjónbraut og/eða sjónúrvinnslustöðvum í heilanum. Það er talin vera ein meginorsök sjónskerðingar hjá börnum en er oft misskilin og vangreind.

Markmið: Upplýsa almenning um heilatengda sjónskerðingu
Markhópur: Einstaklingar með CVI, foreldrar og aðstandendur, fagfólk
Tungumál: íslenska/enska

Tími: 10. október, kl. 14:00-18:00.
Staður: Verkís, Ofanleiti 2, Reykjavík
kynnir: Margrét María Sigurðardóttir.

Ráðstefnu dagskrá:
Kl. 14:00 - Setning – Sigþór formaður Blindrafélagsins og Margrét María forstjóri ÞÞM
Kl. 14:05 - Dr. Roman-Lantzy; Hvað er CVI eða heilatengd sjónskerðing? Dr. Roman hefur sérhæft sig í einkennum CVI, matstækjum og kennslu.
Kl. 15:00 - Teach CVI Erasmus+ Evrópuverkefni; samstarf um matstæki og kennsluefni. ÞÞM kynnir; Estella D: Björnsson og Dr. Roxana Cziker
Kl. 15:30 - Kaffihlé- léttar veitingar
Kl. 15:50 - Dr. Lantzy fjallar um orsakir CVI; Dr. Lantzy er barnalæknir sem sérhæfði sig í nýburum.
Kl. 16:30 - Reynslusögur; einstaklingar segja frá eigin upplifun af að lifa með heilatengdri sjónskerðingu.
Kl. 17:20 - Kaffihlé
Kl. 17:30 - Börn með CVI á Íslandi; Dr. Roxana Cziker sérfræðingur i CVI
Kl. 17:45 - Kynning á þjónustu og tölfræði frá Þjónustu- og Þekkingarmiðstöð (ÞÞM), Estella D. Björnsson fagstjóri sjónfræði.
Kl. 18:00 - Ráðstefnu lok

Þátttaka er ókeypis. Skráning fer fram hjá afgreidsla@blind.is.