Sunnudagsganga

Næsta sunnudagsganga Blindrafélagsins er 9. febrúar kl 13:00.

Ferða- og útivistanefnd Blindrafélagsins efnir til gönguferðar annan sunnudag í mánuði frá 15. september 2019 til 10. maí 2020.

Gengið verður frá aðalinngangi Hamrahlíðar 17 og sem leið liggur út í buskann, eða þangað sem göngustjóranum dettur í hug að fara. Lagt verður af stað kl 13:00 og gengið í um eina og hálfa til tvær klukkustundir og mun gönguleið taka mið af veðri, vindum og færð.

Göngustjóri er Sigurjón Einarsson (Sjonni).

Vinsamlegast munið að skrá ykkur milli kl 11:00 og 12:00 göngudaginn hjá Sjonna í síma 824 8820 en þá liggur fyrir hvort gengið verður. Hann gefur einnig frekari upplýsingar.

Munið að taka með ykkur gesti og góða skapið og að gönguferðir eru ekki mis erfiðar heldur mis léttar og að klæða ykkur samkvæmt aðstæðum og veðurútliti hverju sinni.