Þorrablót skemmtinefndar

Þorrablót skemmtinefndar verður haldið 14. febrúar í sal Blindrafélagsins á annarri hæð í Hamrahlíð 17. Húsið opnar kl. 18:00 og hefst borðhald kl. 19:00. Veislustjórnun verður í umsjón skemmtinefndar.

Hljómsveitin Blek og Byttur sér um skemmtun kvöldsins. Boðið verður upp á óvenju flottan matseðil frá Múlakaffi.

Miðaverð er 7.500 kr. og skráning er hafin í gegnum skrifstofu Blindrafélagsins á netfangið afgreidsla@blind.is eða í síma 525 0000.  Skráningu lýkur 12. febrúar.

Matseðill þorrahlaðborðs 2026.

Súrmeti: Hrútspungar, sviðasulta, lundabaggar og lifrarpylsa.

Nýmeti: Hangikjöt, harðfiskur, hákarl, rauðrófusíld, karrýsíld, marineruð síld, rúgbrauð og smjör, sviðasulta, sviðakjammar, köld rófustappa, ítalskt salat, soðið saltkjöt með uppstúf og kartöflum.

Heitur réttur til hliðar: Nautapottréttur með kartöflumús.

Fyrir grænkerana: Indverskur grænmetispottréttur (v), ristaðar sætar kartöflur og mais með spínati og mangódressingu (V), black garlic kryddað blómkál og brokkolí með klettasalati (V) og grænt salat (V).

Skemmtinefnd.