Páskaratleikur Ungblindar

Ungblind býður til QR-páskaratleiks með NaviLens‑appinu sunnudaginn 22. mars. Ratleikurinn hefst klukkan 12:00, en gott er að mæta aðeins fyrr fyrir þá sem vilja fá aðstoð við að setja upp appið og vera tilbúnir þegar leikurinn byrjar.

Þetta er frábær leið til að kynnast umhverfinu og hafa gaman saman.

Mikilvægt er að skrá sig á viðburðinn í síma 525 0000 eða senda póst á netfangið afgreidsla@blind.is

NaviLens er hægt að sækja fyrir Android snjallsíma hér. 

NaviLens er hægt að sækja fyrir Apple snjallsíma hér.