Vorfagnaður skemmtinefndar

Skemmtinefndin boðar til vorfagnaðar, föstudaginn 24. mars. Húsið opnar kl.18:00 og maturinn hefst kl. 19:00. Boðið verður upp á gómsætar kótelettur með öllu tilheyrandi. Rúna Garðarsdóttir verður veislustjóri og mun Kaisu spila undir borðhaldi á flautu og saxafón. 
Eftir borðhald mætir Dansbandið og heldur uppi fjörinu fram eftir kvöldi.
 
Skráning fer fram í gegnum skrifstofu félagsins í síma 525 0000 eða afgreidsla@blind.is miðaverð er aðeins 4.500 kr. á manninn og greiðist við skráningu. Við hvetjum félagsmenn til að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér sæti.
 
Endilega komið og fagnið komandi vori með okkur. Heppnin gæti verið með þér þar sem dregin verða út páskaegg frá Freyju.
 
Bestu kveðjur.
Skemmtinefndin.