Vorferð Opins húss, 16. maí.
Keyrt verður til Sólheima, þar sem við munum byrja á smá kaffi og pönnsum.
Lagt verður af stað stundvíslega klukkan 13:00.
Síðan mun Valgeir leiða okkur í gegnum vinnustofuna, gróðurhúsið og verslunina. Þar fáum tækifæri að versla ef við viljum.
Þaðan höldum við áfram í Grímsborgir þar sem við fáum lambakjöt með salati, kartöflum, gulrótum og brúnni sósu. Í eftirrétt verður svo súkkulaðikaka með rjóma og jarðaberjum.
Mun máltíðinn kosta 8500 krónur, ef fólk vill kaupa sér rautt, hvítt eða bjór þá bætist það við verðið.
Við gerum svo upp hvert og eitt þegar við förum.
Skráning er hafin og fer fram á skrifstofu Blindrafélagsins, á netfangið afgreidsla@blind.is eða í síma 525 0000.
Síðasti skráningardagur er 12 maí.