Ályktun – Fögnum réttlátara samfélagi

Aðalfundur Blindrafélagsins, haldinn 9. maí 2026 

Aðalfundur Blindrafélagsins, haldinn 9. maí 2026, fagnar farsælum lyktum eftirfarandi atriða sem styrkja grundvöll mannréttinda, auka samfélagslega þátttöku og bæta lífskjör fólks með sjónskerðingu og annarra fatlaðra einstaklinga. 

1. Lögfesting Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) 
Blindrafélagið lýsir yfir mikilli ánægju með að Ísland hafi lögfest SRFF og þar með sett áfangaskil við vegferðina sem hófst með undirritun samningsins árið 2007 og fullgildingu árið 2016. Samningurinn kveður á um jafnan rétt fatlaðs fólks til þátttöku í samfélaginu, sjálfstæðs lífs og aðgengis að þjónustu og upplýsingum. 
Um leið og Blindrafélagið fagnar þessum sögulega áfanga hvetur það Alþingi til að lögfesta jafnframt „valfrjálsu bókunina“ við samninginn, enda er mikilvægt að stuðla að aukinni vernd þeirra réttinda sem í samningnum felast.  

2. Greiðslur almannatrygginga fylgja launavísitölu fest í lög   

Trygg og réttlát framfærsla er grundvöllur virkrar þátttöku í samfélaginu og mannlegrar reisnar. Greiðslur almannatrygginga eru að stærstum hluta ellilífeyrir og greiðslur vegna örorku og endurhæfingar. Samþykkt laganna felur í sér að greiðslur almannatrygginga fylgja þróun launavísitölu sem tryggir að fatlað fólk, öryrkjar og ellilífeyrisþegar njóti samsvarandi kjarabótar og aðrir hópar samfélagsins. Undanfarin ár höfðu örorkulífeyrisþegar orðið undir í tekjuþróun, þar sem lífeyrir hafði hvorki fylgt almennri launaþróun né verðlagi.    

Blindrafélagið fagnar því eindregið að höggvið sé á þennan vítahring. 

3. Lög um aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila 

Blindrafélagið fagnar heilshugar að fest hafi verið í lög að vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum opinberra aðila skuli framvegis vera aðgengileg öllum, einkum fötluðu fólki, með því að gera þau skynjanleg, nothæf, skiljanleg og traust. Sem og um forrit fyrir fartæki á vegum frjálsra félagasamtaka sem veita þjónustu sem er nauðsynleg almenningi eða þjónustu sem beinist sérstaklega að þörfum fatlaðs fólks.  
Nauðsyn þess að tryggja gott aðgengi að stafrænni þjónustu og upplýsingum er stöðugt að verða mikilvægari þáttur í nútímasamfélagi. Þessi lög eru þýðingarmikið skref í rétta átt. 
Tilvísun: 870/157 : aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila   

Samantekt 
Þessi mál, sem varða grundvallarmannréttindi fatlaðs fólks, voru öll til afgreiðslu á Alþingi í vetur. Með því að tryggja framgang þeirra sýndi Alþingi raunverulega ábyrgð og steig stórt skref í átt að réttlátara, aðgengilegra og mannúðlegra samfélagi, þar sem enginn er skilinn eftir.