Hjörtur Heiðar Jónsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Blindrafélagsins. Hann tekur við starfinu að loknum uppsagnarfresti og er gert ráð fyrir að hann hefji formlega störf í byrjun árs 2027. Hjörtur er félaginu vel kunnugur en hann hefur setið í stjórn Blindravinnustofunnar um árabil og verið stjórnarformaður síðustu fjögur ár.
Hjörtur kemur til Blindrafélagsins frá ALM Verðbréfum, þar sem hann hefur starfað við eignastýringu og áhættugreiningu. Hann á að baki fjölbreyttan starfsferil, meðal annars hjá Háskólanum á Akureyri, Íslenskri erfðagreiningu og Landsbankanum, bæði hér á landi og í London. Hann er með BSc-gráðu í kennilegri eðlisfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í öreindafræði frá Háskólanum í Karlsruhe.
Við bjóðum Hjört Heiðar Jónsson hjartanlega velkominn til starfa og hlökkum til samstarfsins.