Félagsfundur 23. nóvember

Stjórn Blindrafélagsins boðar til félagsfundar miðvikudaginn 23. nóvember klukkan 16:30 í Hamrahlíð 17, 2. hæð. Hér fyrir neðan má sjá dagskrá fundarins. Í næsta fréttabréfi Blindrafélagsins, sem kemur út föstudaginn 11. nóvember, verður greint frá því hverjir verða með framsöguerindi á fundinum. Gert er ráð fyrir því að fundurinn endi klukkan 19:00. Að fundi loknum verður boðið upp á veisluplatta frá Subway. Þess vegna viljum við biðja fólk að skrá sig fyrirfram á fundinn, með því að hafa samband við skrifstofu Blindrafélagsins, á netfangið afgreidsla@blind.is eða í síma 525 0000, í síðasta lagi þriðjudaginn 22. nóvember, þannig að hægt sé að áætla veitingar.

Dagskrá félagsfundar 23. nóvember klukkan 16:30.

  1. Formaður Blindrafélagsins setur fund.
  2. Kynning viðstaddra.
  3. Val á fundarstjóra og fundarritara.
  4. Þjónusta sveitarfélaga við blint og sjónskert fólk.
  5. Kynning á styrktarsjóðum sem Blindrafélagið heldur utan um í samstarfi við ýmsa aðila.
  6. Önnur mál.

Vill undirritaður hvetja alla félagsmenn til að mæta til að ræða mikilvæg mál sem snerta félagsmenn Blindrafélagsins. Með félagskveðju og fyrir hönd stjórnar Blindrafélagsins,

Sigþór U. Hallfreðsson,
formaður Blindrafélagsins.