Gjaldhækkun á ferðaþjónustu Blindrafélagsins janúar 2024.

Í byrjun janúar 2024 hækkar staðgreiðslugjald Strætó úr 570 kr. í 630 kr. og þar með hækkar kostnaðarþátttaka notenda í ferðaþjónustunni samsvarandi.

Ferðaþjónusta Blindrafélagsins er þjónustuúrræði sem notast við leigubifreiðar. Samningar eru gerðir við sveitarfélög, sem samkvæmt gildandi lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, bera ábyrgð á að fötluðu fólki standi til boða "stoðþjónusta sem er nauðsynleg þátttöku þess í samfélaginu án aðgreiningar þannig að það standi til jafns við aðra og komið verði í veg fyrir félagslega einangrun þess."

Sækja ber um ferðaþjónustu hjá því sveitarfélagi sem umsækjandi er búsettur í.

Frekari upplýsingar um Ferðaþjónustu Blindrafélagsins.

Frétt Strætó bs um gjaldskrárbreytingu janúar 2024.