Skipanir og aðstoð fyrir NVDA hugbúnað

NVDA stendur fyrir NonVisual Desktop Access og er skjálestrarforrit fyrir Windows stýrikerfið. Forritið er ókeypis en hægt er að styrkja útgáfu forritsins með frjálsum fjárframlögum til að aðstoða við áframhald á þróun og viðhaldi forritsins.

Í NVDA er valið svokallaðan NVDA breytilykil. Helsti breytilykilinn er Insert hnappurinn en í NVDA er hægt að nota Caps Lock lykilinn sem NVDA breytilykil fyrir flýtileiðir. Í listanum hér að neðan eru skipanir birtar með NVDA sem lyklaborðs hnappinn sem NVDA breytilykillinn. Í þeim tilfellum notar þú þann hnapp á lyklaborðinu sem þú hefur valið sem breytilykil í NVDA.

Á þessari síðu er hægt að finna ýmsar lyklaborðsskipanir og lausnir fyrir ýmis vandamál fyrir notkun á NVDA.

Þegar NVDA er uppsett á tölvunni breytist virkni lyklaborðsins þannig að hægt sé að fara um skjáinn og framkvæma lestur á tilteknum atriðum með skipunum. Það er hægt að lesa upplýsingar í viðmóti, heiti reita og takka, lengri texta og hlusta á eigin innslátt hvort sem það eru stakir stafir, orð eða heilar setningar. Til þess að stjórna lestri eru notaðar skipanir sem notast við NVDA takkann og t.d. örvalykla eða F-lykla,. Tab, Control, Alt og stakir starfir eru einnig notaðir í samsetningum. Það er gott að huga að hönnun lyklaborðs við val á tölvu og merkja þá takka sem eru mest notaðir á meðan notandi er að læra á forritið.

NVDA hugbúnaðinn er hægt að ná í á heimasíðu NVAccess.

Helstu skipanir fyrir NVDA.

Undirstöðuatriðin.

Efni

Aðgerð

Lyklaborðsskipanir

Af/á:

Kveikja á NVDA

Control + Alt + N

Slökkva á NVDA

NVDA + Q

Lestur:

Stöðva Lestur

Control

Hefja Lestur frá þessari staðsetningu

NVDA + örvahnappur niður eða + á talnaborði

Lesa næsta hlut

Örvahnappur niður eða + á talnaborði

Lesa næsta áherslulegan hlut (t.d. hlekk, hnapp)

Tab

Virkja:

Hlekk

Enter

Hnapp

Enter eða Bil

Fyrirsagnir:

Fara á næstu fyrirsögn

H

Fara á næstu fyrirsögn með stig [1-6]

1 - 6

Listi yfir allar fyrirsagnir

NVDA + F7

Kennileiti:

Fara á næsta kennileiti

D

Flýtilisti:

Listi yfir alla hlekki, fyrirsagnir og kennileiti

NVDA + F7

Töflur:

Fara að næstu töflu

T

Ferðast um töflureiti

Ctrl + Alt + örvahnappur niður eða örvahnappur upp eða örvahnappur til vinstri eða örvahnappur til hægri

Listar:

Fara að næsta lista

L

Fara á næsta lið í lista

I

Myndir:

Fara á næstu mynd

G

Hlekkir:

Listi yfir alla hlekki

NVDA + F7

Fara á næsta hlekk

K

Fara á næsta óheimsótta hlekk

U

Fara á næsta heimsótta hlekk

V

Flakk:

Flakka milli:
Radio buttons 
<select>lista
Flipa (ARIA widget) 
Trélista (ARIA widget) 
Vallista (ARIA widget)

Örvahnappur til vinstri eða örvahnappur niður eða örvahnappur til vinstri eða örvahnappur upp.

Fara afturábak:

Fara á fyrri fyrirsögn, kennileiti, töflu, hlekk o.s.frv.

Shift + [H, D, T, Tab, o.s.frv.]

Textalestur

Efni

Aðgerð

Lyklaborðsskipanir

Lína:

Lesa fyrri línu

Örvahnappur upp eða 7 á talnaborði

Lesa næstu línu

Örvahnappur niður eða 9 á talnaborði

Lesa núverandi línu

NVDA + örvahnappur upp eða 8 á talnaborði

Byrjun á línu

Shift + 1 á talnaborði

Endir á línu

Shift + 3 á talnaborði

Efsta línan

Shift + 7 á talnaborði

Neðsta línan

Shift + 9 á talnaborði

Bókstafir:

Lesa fyrri bókstaf

Örvahnappur til vinstri eða 1 á talnaborði

Lesa næsta bókstaf

Örvahnappur til hægri eða 3 á talnaborði

Lesa núverandi bókstaf

2 á talnaborði

Lesa framburð á bókstöfum

5 á talnaborði tvisvar hratt

Orð:

Lesa fyrra orð

Ctrl + örvahnappur til vinstri eða 4 á talnaborði

Lesa næsta orð

Ctrl + örvahnappur til hægri eða 6 á talnaborði

Lesa núverandi orð

5 á talnaborði

Setningar:

Lesa fyrri setningu

Alt + örvahnappur upp

Lesa næstu setningu

Alt + örvahnappur niður

Lesa núverandi setningu

Alt + 5 á talnaborði

Efnisgrein:

Næsta efnisgrein

Ctrl + örvahnappur upp eða Q

Stafa:

Stafa orð

5 á talnaborði tvisvar hratt

Stafa núverandi línu

NVDA + örvahnappur upp tvisvar hratt

Töflur

Efni

Aðgerð

Lyklaborðsskipanir

Tafla:

Fara í næstu (fyrri) töflu

T (Shift + T)

Reitur:

Reitur til hægri

Ctrl + Alt + örvahnappur til hægri

Reitur til vinstri

Ctrl + Alt + örvahnappur til vinstri

Reitur fyrir neðan

Ctrl + Alt + örvahnappur niður

Reitur fyrir ofan

Ctrl + Alt + örvahnappur upp

Form

Efni

Aðgerð

Lyklaborðsskipanir

Flakk:

Næsta form

F

Næsti áherslulegi hlutur

Tab

Næsti hnappur

B

Gátreitir:

Velja og af-velja

Bil

Næsti gátreitur

X

Fellilist (<select>):

Opna fellilista

Alt + örvahnappur niður

Flakka um fellilista

Örvahnappur niður eða Fyrsti stafur

Velja marga hluti í fellilista

Shift + örvahnappur niður (eða örvahnappur upp)

Næsti fellilisti

C

Einvalshnappur:

Flytja val

Örvahnappur upp/ örvahnappur niður

Næsti einvalshnappur

R

Form hamur:*

Skipta á milli form ham og vafra ham

NVDA + Bil

* Form hamur gerir þér kleift að setja inn gögn í hluti í forminu. Vafra hamur gerir þér kleift að flakka um formið með að nota venjulega skjálestra flýtileiðir (t.d. milli fyrirsagna, kennileita, hlekkja o.fl.)

Aðrar skipanir

Aðgerð

Lyklaborðsskipanir

Leita að orði eða setningu

NVDA + Ctrl + F

Hjálp

NVDA + 1

Næsta tilvitnunarsvæði

Q

Næsti hnappur sem þú notar skrifast inn og er hunsaður af NVDA skjálesaranum.

NVDA + F2

Les skrifaða bókstafi

NVDA + 2

Les skrifaðar setningar

NVDA + 3

Les alla forgruns glugga (valmyndarglugga)

NVDA + B

Les titil forgruns glugga

NVDA + T

 

Þekkt vandamál í NVDA og lausnir við þeim.

NVDA hættir að lesa það sem er undir músinni:

Þú getur byrjað að fara í stillingar (NVDA + N, svo valkostir, svo settings) og farið þar í Mouse stillingarnar. Þar þarftu að vera merkt við "Kveikja á músarfylgni".

NVDA les upp „falin greinarmerki“ (soft hypend) á vefsvæðum:

Þegar þú notar NVDA + p, ferð þú á milli stillinga fyrir þennan upplestur. Hægt er að velja milli „Symbol level ekkert“, „Symbol level lítið“ eða „Symbol level mikið“.

Nánari aðstoð og upplýsingar.

Hægt er að nálgast nánari aðstoð og hjálp á heimasíðu NVDA.