Kæru félagsmenn.
Eins og okkur öllum er kunnugt hefur Kristinn Halldór Einarsson verið ötull baráttumaður fyrir réttindum blindra og sjónskertra í yfir tuttugu ár, bæði sem formaður og síðar sem framkvæmdastjóri Blindrafélagsins.
Kristinn hefur átt frumkvæði að fjölmörgum verkefnum og átt drjúgan þátt í stórum sigrum sem leitt hafa af sér réttarbætur og framfarir sem bætt hafa lífsgæði ótal margra.
Fyrir það erum við afskaplega þakklát og stolt.
Nú er komið að tímamótum. Kristinn og Blindrafélagið hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem framkvæmdastjóri félagsins eftir gjöfult og gott starf.
Ljóst er að nýr aðili mun taka við góðu búi að afloknu ráðningarferli.
Áfram verður Kristinn sem fyrr félagsmaður, bakhjarl og vinur. Við þökkum Kristni kærlega fyrir allt sem hann hefur gert fyrir félagið okkar og félagsmenn og óskum honum alls velfarnaðar í næstu verkefnum.
Fyrir hönd stjórnar,
Sigþór U. Hallfreðsson.