Hljóðupptaka frá Ráðstefnu um heilatengda sjónskerðingu, CVI.

Blindrafélagið í samstarfi við Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu héldu ráðstefnu um heilatengda sjónskerðingu, CVI.

Heilatengd sjónskerðing (CVI) er sjónskerðing sem orsakast af skemmdum á sjónbraut og/eða sjónúrvinnslustöðvum í heilanum. Það er talin vera ein meginorsök sjónskerðingar hjá börnum en er oft misskilin og vangreind.

Ráðstefnan var haldin fimmtudagur 10. október kl. 14:00 til 18:00.

Staður: Verkís, Ofanleiti 2, Reykjavík.
Kynnir: Margrét María Sigurðardóttir.
Tungumál: íslenska/enska.

Markmið: Upplýsa almenning um heilatengda sjónskerðingu.
Markhópur: Einstaklingar með CVI, foreldrar og aðstandendur, fagfólk.

01 Setning: Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins.
Lengd um 4 mínútur.

02 Setning: Margrét María Sigurðardóttir, forstjóri ÞÞM.
Lengd um 2 mínútur.

03 Dr. Christine Roman-Lantzy. Hvað er CVI eða heilatengd sjónskerðing?
Lengd um 1 klukkustund.

04 Estella D. Björnsson og Dr. Roxana Cziker. Teach CVI Erasmus+ Evrópuverkefni: Samstarf um matstæki og kennsluefni.
Hér er hægt er að nálgast glærurnar sem voru notaðar.
Lengd um 30 mínútur.

05 Dr. Christine Roman-Lantzy. Orsakir CVI.
Lengd um 40 mínútur.

06 Reynslusögur: Dagbjört Andrésdóttir.
Lengd um 25 mínútur.

07 Reynslusögur: Hjalti Sigurðsson.
Lengd um 15 mínútur.

08 Dr. Roxana Cziker. Börn með CVI á Íslandi.
Hér er hægt að nálgast glærurnar sem voru notaðar.
Lengd um 15 mínútur.

09 Estella D. Björnsson. Kynning á þjónustu og tölfræði frá Þjónustu- og Þekkingarmiðstöð (ÞÞM).
Hér er hægt að nálgast glærurnar sem voru notaðar.
Lengd um 11 mínútur.

10 Ráðstefnu lok: Margrét María Sigurðardóttir, forstjóri ÞÞM og Sigþór U. Hallfreðsson, formaður
Blindrafélagsins.
Lengd um 3 mínútur.