
Vefvarpið – talandi fjölmiðlun fyrir blinda og sjónskerta, er tæki sem opnar gegnum nettengingu valfrjálsan aðgang að upplýsingum og efni fjölmiðla sem í dag eru að miklu leiti óaðgengilegir blindu og sjónskertu fólki sem ekki er vel tölvulæst. Vefvarpið, sem kemur frá hollenska fyrirtækinu Solutions Radio, er einfaldur, talandi, gagnvirkur og auðstýranlegur nettengdur Daisy móttakari. (Digital Accessible Information System) Vefvarpið notast við íslensku talgervilsraddirnar Karl og Dóru.
Hvað er hægt að hlusta á í gegnum vefvarpið?
Efni sem hægt er að hlusta á í gegnum vefvarpið er mjög fjölbreytt. Sumt er hægt að gera aðgengilegt án mikillar fyrrihafnar á meðan að annað krefst nokkurs undirbúnings og samstarfs við eigendur efnisins. Efni sem hægt er að hlusta á í gegnum vefvarpið er:
- Efni frá Blindrafélaginu
- Efni frá Sjónstöðinni
- Hljóðbækur frá Hljóðbókasafns Íslands
- Dagblöð, tímarit og vefmiðlar
- Útvarpsstöðvar og íslenska hlaðvarps þætti
- Rauntímalestur sjónvarpstexta

Dreifing á vefvarpinu.
Vefvarpinu er dreift í gegnum Sjónstöðina, þjónustu og þekkingarmiðstöðina fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, sem hjálpartæki án endurgjalds til þeirra sem komnir eru undir tiltekin sjónskerðingarmörk.
Þeir sem ekki uppfylla skilyrði um gjaldfrjálsa úthlutun eiga þess kost að leigja vefvarpstæki og fá aðgang að þjónustunni gegn vægu gjaldi. Frekari upplýsingar fást hjá Blindrafélaginu.
Leiðbeiningarbæklingur.


Leiðbeiningar til að tengja Vefvarpið við þráðlaust net.
Byrjaðu á því að kveikja á tækinu og leyfðu því að ræsa sig. Þegar það byrjar að segja „Vinna við það að tengja sig við Internetið“, þá fylgir þú þessum leiðbeiningum:
-
Ýttu á hljóðstyrk/hlé takkann til að komast í „hlé-valmynd“.
-
Ýttu á upp eða niður takka til að komast í „stilling tækis“ og ýttu síðan á Val eða OK-takkann.
-
Notaðu upp eða niður takka til að komast í „bæta við þráðlausu neti“ og ýttu svo á OK-takkann.
-
Eftir nokkrar sekúndur heyrirðu lista með nöfnum þeirra þráðlausu neta sem tækið finnur í nágrenninu. Nafnið á þínu neti (SSID) og lykilorðið (WPA/WEP) eru annaðhvort á beininum þínum (oft neðan á þeim) eða á blaði frá netþjónustunni.
-
Notaðu upp og niður takkana þangað til þú finnur netið þitt og ýttu svo á OK-takkann. Vefvarpið lætur þig vita hvort sambandið er gott, miðlungs eða veikt.
-
Ef nettengingin er örugg mun vefvarpið biðja þig um lykilorð. Þú velur úr lista af bókstöfum og tölustöfum og notar þá til að skrifa lykilorðið. Það er mikilvægt að gera greinarmun á stórum og litlum stöfum þegar lykilorðið er skrifað inn.
-
Þú getur annaðhvort notað UPP og NIÐUR takkana eða hljóðstyrks/hlé-takkann til að leita að og velja rétta stafi (stafurinn/táknið sem þú velur er sá sem er lengst til hægri í neðstu línu á skjánum). Vefvarpið byrjar á bókstafnum „a“ og stafrófinu í lágstöfum. Til að komast í hástafi, tölustafi eða tákn er farið upp eða til hægri með hljóðstyrkshnappnum.
-
Í hvert sinn sem þú hefur fundið réttan staf áttu að ýta á OK-takkann; lykilorðið birtist staf fyrir staf vinstra megin á skjánum. Þú getur þurrkað út síðasta staf sem þú slóst inn með því að ýta á tilbaka-takkann.
-
Þegar þú hefur slegið inn/valið allt lykilorðið þarftu að finna „Lokið“ (síðasti stafurinn alveg lengt til hægri/upp) og ýta á OK-takkann. Nú heyrirðu lykilorðið sem þú hefur valið og svo verður nettengingin virk.
-
Vefvarpið segir þér að búið sé að bæta tengingunni þinni við og að hún sé tilbúin til notkunar (ýttu þrisvar sinnum á tilbaka-takkann til að fara aftur í,hlé-valmyndina’).
Ef tækið nær ekki að tengjast við þráðlausa netið þá er mjög líklegt að lykilorðið hafi verið rangt sett inn. Farðu aftur yfir tenginguna og passaðu að allir stafir í lykilorðinu séu réttir. Greinarmunur er gerður á stórum og litlum stöfum í lykilorðum.
Ef uppsetningin hefur tekist mun Vefvarpið bjóða þig velkomið í samband og lesa fyrir þig aðalvalmyndina í Vefvarpinu.
Að stilla seinkun á textalestri sjónvarpsstöðva.
Til að laga lesturinn á texta RÚV svo hann passi betur við útsendinguna er hægt að gera það í hverju tæki fyrir sig.
- Byrjaðu að velja Textalestur sjónvarpsstöðva í aðalvalmyndinni og veldu svo „Ríkisútvarpið sjónvarp“ til að tengjast RÚV.
- Ýttu á hljóðstyrk/hlé takkann til að komast í,hlé-valmynd’.
- Ýttu á upp eða niður takka til að komast í „seinkun á texta“ og ýttu síðan á Val eða OK-takkann.
- Notaðu upp eða niður takka til að bæta við eða taka frá töfinni sem er stillt í tækinu hjá þér. Þessi töf er lengdin sem tækið bíður með að lesa textann sem kemur frá RÚV. Yfirleitt fær Vefvarpið textann á undan útsendingunni og því getur þurft að bæta við nokkrum sekúndum í seinkun á lestri. Ýttu svo á Val eða OK-takkann til að vista stillinguna.
- Vefvarpið segir nú „Stillingin er breytt“ og tengist nú aftur textalestrinum.
- Það getur tekið smá tíma að ná þessari stillingu rétt og því þarf stundum að fara aftur inn í stillinguna og bæta við eða taka af seinkunninni.